Gleðileg jól gott fólk nær og fjær.

Við sitjum hérna gömlu hjónin afvelta. Börnin eru loksins sofnuð og spennustigið hefur lækkað. Þvílíkur fjöldi af pökkum og þvílík spenna. Gjafirnar voru óvenju flottar í ár og ég held að börnin hafi farið í bólið nokkuð sátt við vöruskiptajöfnuð þetta árið. Nokkuð hagstæður í ár. Mest gaman var að sjá viðbrögðin hjá Matthíasi sem sagði "vá" í sífellu þegar hann opnaði pakkana sína.
Alexander er í skýjunum með nýja trommusettið sitt (raftrommusett) og mp3 spilarann.Dísa réði sér ekki fyrir kæti yfir geislaspilaranum sem hún fékk og Barbie safndisknum. Hún sofnaði út frá þessu núna í kvöld.

Ég var svo heppinn að fá kaffikvörn og mun því geta einvörðungu keypt kaffibaunir á heimilið þannig að nú er ennþá frekar ástæða til að koma hingað í heimsókn. Svo fékk ég þetta fína mortel og skip í flösku.

Jæja ég er farinn í bólið.

kveðja,

Arnar Thor

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Gleðileg jól öll saman. Hér var líka mikil spenna og allir mjög ánægðir. Elvar fékk einmitt líka MP3 og við erum að fara að hlaða inn á hann ca 120 lögum núna ;-) Hreiðar er MJÖG ánægður með Playmobil víkingaskip sem hlotið hefur nafnið Íslendingur og Steinunn fékk fínann barbei fjölskyldubíl að Volvo gerð, með 3ja punkta beltum fyrir 5 að sjálfsögðu. Njótið hátiðanna.
KV Munda, Raggi, Elvar, Hreiðar og Steinunn

Vinsælar færslur